Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum í þágu barna

530. mál á 152. löggjafarþingi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Markmið

Að skapa umgjörð í lögum sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. 

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpið felur í sér breytingar á fjórum lagabálkum á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðherra sem er ætlað að samræma þá löggjöf og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Lög um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008.
Lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011.
Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.

Kostnaður og tekjur

Þær breytingar sem eru lagðar til í frumvarpinu eru þess eðlis að þær rúmast innan þeirra fjárveitinga sem þegar eru ætlaðar í innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og kalla ekki á viðbótarútgjöld umfram það sem nú er.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 23.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.