Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki o.fl.

533. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða efni Evrópugerða á sviði fjármálamarkaðar.

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að ljúka því sem út af stendur í innleiðingu á svonefndum CRD IV-pakka ásamt því að innleiða breytingar á honum með CRD V, CRR II og öðrum gerðum sem breyttu CRR. Lagðar eru til breytingar á starfskjaraákvæðum laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og laga um verðbréfasjóði til að innleiða ákvæði reglugerðanna AIFMD og UCITS V þar um. Auk þess eru lagðar til breytingar sem miða að því að skýra eða einfalda lög um fjármálafyrirtæki eða lagfæra tæknilega annmarka á lögum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Alls er verið að breyta 26 lögum.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 22.08.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.