Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

568. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að gefa lífeyrissjóðum fleiri möguleika til fjárfestinga þannig að þeir geti tekið ákvarðanir sem gera þá betur í stakk búna til að standa undir lífeyrisskuldbindingum. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til fjórar breytingar er varða heimila skiptingu fjárfestinga lífeyrissjóða milli eigna í krónum og erlendum gjaldmiðlum. Þá er lagt til að heimilt verði að birta yfirlit og upplýsingar til sjóðfélaga rafrænt í stað pappírssendinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.

Kostnaður og tekjur

Ekki eru fyrirséð bein áhrif á ríkissjóð af samþykkt frumvarpsins til skemmri tíma.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla starfshóps um hlutverk lífeyrissjóða í uppbyggingu atvinnulífs. Forsætisráðuneytið, 19. janúar 2018.



Síðast breytt 26.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.