Samantekt um þingmál

Vaktstöð siglinga

574. mál á 152. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að stuðla að bættu regluverki um vaktstöð siglinga með því að einfalda stjórnsýslu og skýra ákvæði um gjaldtöku. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð er til breyting á ákvæði um útvistun verkefna þannig að þau endurspegli núverandi framkvæmd við rekstur vaktstöðvar siglinga. Þá er lagt til að upphæð árgjalds, sem eigandi hvers skips skal greiða fyrir þjónustu í sjálfvirka tilkynningarkerfinu, verði tilgreind (14.000 kr.) og að gjaldið haldi í við verðlagsbreytingar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að árgjald fyrir þjónustu í sjálfvirka tilkynningarkerfinu hækki um 3.500 kr. á ári, úr 10.500 kr. í 14.000 kr. og að það haldi síðan í við verðlagsbreytingar. Árgjald þetta rennur í ríkissjóð. Hækkunin nær til allra skipa sem notuð eru í atvinnuskyni eða 1.900–1.950 skipa miðað við skráð skip síðastliðin ár. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 28.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.