Samantekt um þingmál

Pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun

587. mál á 152. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Til að styðja við viðspyrnu ferðaþjónustunnar og stuðla að bættu rekstrarhæfi ferðaskrifstofa hér á landi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimilt verði að lengja lánstíma lána sem Ferðaábyrgðasjóður hefur veitt til ferðaskrifstofa til að endurgreiða neytendum vegna pakkaferða sem var aflýst eða voru afbókaðar vegna óvenjulegra og óviðráðanlegra aðstæðna sem sköpuðust í upphafi kórónuveirufaraldursins. Lánin voru veitt til allt að sex ára en lagt er til að heimilt verði að lengja lánstímann til allt að tíu ára.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 24.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.