Samantekt um þingmál

Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum

590. mál á 152. löggjafarþingi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Markmið

Að gera umgjörðina um vinnutíma starfsmanna sem sinna notendastýrðri persónulegri aðstoð skýrari. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að í undantekningartilvikum verði heimilt með samningi milli þess sveitarfélags sem í hlut á og hlutaðeigandi umsýsluaðila að víkja frá almennum reglum laganna hvað varðar hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veita þjónustu á grundvelli 11. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 23.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.