Samantekt um þingmál

Greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna

591. mál á 152. löggjafarþingi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Markmið

Að tryggja þeim sem lögin taka til greiðslur vegna sérstakra umönnunarþarfa langveikra eða fatlaðra barna sem er umfram það sem eðlilegt getur talist miðað við heilbrigð börn á sama aldursskeiði eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Að koma til móts við þann kostnað sem stafar af fötlun eða veikindum barna og aðrir opinberir aðilar greiða ekki. Að stuðla að því að börnum skv. 1. mgr. laganna og umönnunaraðilum þeirra verði gert kleift að lifa eins eðlilegu lífi og mögulegt er.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sett verði sérstök lög um greiðslur af hálfu ríkisins til umönnunaraðila langveikra eða fatlaðra barna í stað gildandi laga. Gert er ráð fyrir að umönnunargreiðslur og foreldragreiðslur í núgildandi kerfi verði sameinaðar og skiptist annars vegar í umönnunarstyrk og hins vegar í umönnunargreiðslur.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr.  22/2006. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009, lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

Kostnaður og tekjur

Áætlað er að útgjaldaaukning ríkissjóðs geti numið 2,6-4,4 milljörðum kr. á ári en nettókostnaður yrði minni þar sem á móti kæmi tekjuskattur og útsvar.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 23.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.