Samantekt um þingmál
596. mál á 152. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.
Markmið
Að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun á rekstrarumhverfi smærri brugghúsa á Íslandi.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að smærri áfengisframleiðendum verði gert kleift að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um verslun með áfengi og tóbak, nr.
86/2011.
Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr.
88/1991.
Kostnaður og tekjur
Ekki hefur farið fram mat á því hver áhrif frumvarpsins kunni að verða á áfengissölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins verði það að lögum.
Afgreiðsla
Samþykkt með þeirri breytingu helstri að heimilað var að selja allar tegundir áfengis á framleiðslustað, að því gefnu að heildarframleiðsla leyfishafans sé undir tilteknu hámarki. Í tilviki áfengis sem er að rúmmáli meira en 12% af hreinum vínanda var heildarframleiðsla leyfishafa takmörkuð við 100.000 lítra á ári.
Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Finnland
Noregur
Síðast breytt 22.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.