Samantekt um þingmál

Tekjuskattur o.fl.

678. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sérstakur barnabótaauki verði greiddur út 1. júlí 2022 að fjárhæð 20.000 kr. með hverju barni í þeim tilvikum þar sem ákvarðaðar eru tekjutengdar barnabætur til framfærenda við álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2022. Þá er lagt til að bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð hækki um 3% frá 1. júní 2022. Að lokum er gert ráð fyrir að húsnæðisbætur hækki um 10% frá 1. júní 2022 og að frítekjumörk húsnæðisbóta hækki afturvirkt um 3% frá 1. janúar 2022.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007.
Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.

Kostnaður og tekjur

Kostnaður ríkissjóðs af sérstökum einskiptis barnabótaauka að fjárhæð 20.000 kr., vegna hvers barns að tilteknum skilyrðum uppfylltum hinn 1. júlí 2022, er áætlaður um 1,1 milljarður kr. Kostnaður við hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar um 3% frá 1. júní 2022 er áætlaður 3 til 3,5 milljarðar kr. og 5 til 5,5 milljarðar kr. á ársgrundvelli. Kostnaður við hækkun grunnfjárhæða húsnæðisbóta og frítekjumörk húsnæðisbóta nemur um 600 milljónum kr. á yfirstandandi ári og um 1 milljarði kr. á ársgrundvelli.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeim breytingum að endurreikningur og leiðrétting húsnæðisbóta skuli vera til bráðabirgða fyrir tímabilið 1. janúar – 31. maí 2022 og að hækkun á greiðslum almannatrygginga komi til framkvæmda eigi síðar en 1. júlí 2022.


Síðast breytt 26.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.