Samantekt um þingmál

Bann við leit, rannsóknum og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni

691. mál á 152. löggjafarþingi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Markmið

Að mæla fyrir um bann við leit, rannsóknum og vinnslu kolvetnis. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að bannað verði að veita leyfi til leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis (olíu) í efnahagslögsögu Íslands.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990.
Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lög um brunavarnir, nr. 75/2000.
Lög um mannvirki, nr. 160/2010.
Lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.

Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001, lög um skattlagningu á kolvetnisvinnslu, nr. 109/2011, og lög um stofnun hlutafélags um þátttöku íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi, nr. 6/2015.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.


Síðast breytt 27.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.