Samantekt um þingmál

Tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi

1028. mál á 153. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að bregðast við bráðavanda í húsnæðismálum umsækjenda um alþjóðlega vernd með því að gera stjórnvöldum kleift að nota húsnæði, sem ekki hefur verið ætlað til búsetu, undir tímabundin búsetuúrræði.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að Skipulagsstofnun geti veitt tímabundna undanþágu frá almennum skilyrðum og ferlum gildandi mannvirkja- og skipulagslöggjafar til að heimila breytta notkun húsnæðis sem ætlað er til tímabundinnar búsetu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Gert er ráð fyrir að húsnæðið uppfylli kröfur um brunavarnir, öryggi og hollustuhætti áður en það er tekið í notkun. Lagt er til að undanþágur verði bundnar við tímabundna notkun húsnæðis í allt að þrjú og hálft ár.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um brunavarnir, nr. 75/2000.
Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lög um mannvirki, nr. 160/2010.
Skipulagslög, nr. 123/2010.

Kostnaður og tekjur

Áætlaður kostnaður við að útbúa 1.000 rými með viðeigandi breytingum er um 500–800 milljónir kr. fyrir húsnæði í eigu ríkisins. Kostnaður við önnur 1.000 rými gæti verið um 50% hærri vegna frekari breytinga sem þarf að gera. Heildarkostnaður gæti numið 2,4–3,8 milljörðum kr. fyrir samtals 3.000 rými. Gert er ráð fyrir að slíkt húsnæði verði selt þegar notkun þess lýkur og að hugsanlega megi endurheimta útlagðan kostnað vegna breytinga við sölu.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 27.05.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.