Samantekt um þingmál

Greiðslureikningar

166. mál á 153. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að bæta samanburð gjalda er varða greiðslureikninga, auðvelda skipti á greiðslureikningum og aðgengi að almennum greiðslureikningum. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð eru til ný heildarlög um greiðslureikninga sem eru innleiðing á tilskipun 2014/92/ESB um greiðslureikninga. Tryggja skal að allir sem dvelja löglega til lengri tíma á Íslandi fái aðgang að greiðslureikningi með grunneiginleikum. Þá verður neytendum auðveldað að skipta um greiðslureikninga og aðgengi almennings að upplýsingum um gjaldtöku vegna greiðslureikninga bætt, m.a. með samanburðarvefsetri um gjöld sem tengjast greiðslureikningum. Gerðar verða auknar kröfur til lánastofnana um að tryggja þessi réttindi neytenda.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021.
  • Endurflutt: Greiðslureikningar, 417. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 152. þingi (02.03.2022)

Kostnaður og tekjur

Ekki liggur fyrir hvort einhver kostnaður fellur á ríkissjóð vegna kröfu tilskipunarinnar um samanburðarvefsetur varðandi gjöld fyrir greiðslureikninga en í frumvarpinu er ráðherra falið að setja reglugerð til innleiðingar á því ákvæði. Að öðru leyti eru ekki fyrirséð fjárhagsáhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins  2014/92/ESB frá 23. júlí 2014 um samanburð gjalda er varða greiðslureikninga, skipti á greiðslureikningum og aðgengi að almennum greiðslureikningum (tilskipun um greiðslureikninga).


Síðast breytt 28.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.