Samantekt um þingmál

Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

390. mál á 153. löggjafarþingi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Markmið

Að tryggja að lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana séu í samræmi við rétta innleiðingu á Evróputilskipun um mat á umhverfisáhrifum. Að tilgreina nauðsynleg skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðaheimilda í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að útfæra nánar skilyrði fyrir veitingu undanþágu frá starfsleyfi á grundvelli laganna með hliðsjón af athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Í tilvikum þar sem starfs- eða rekstrarleyfi hefur verið fellt brott vegna annmarka á umhverfismati yrði bráðabirgðaleyfi aðeins veitt ef nauðsynlegar lagfæringar á umhverfismati eru gerðar til að uppfylla lagakröfur. Evrópudómstóllinn hefur áréttað að heimild til tímabundinna ráðstafana til að bæta úr göllum á umhverfismati geti aðeins átt við í sérstökum undantekningartilvikum. Með frumvarpinu er lögð til breyting á orðalagi lagaákvæða til að taka af allan vafa um að um sérstök undantekningartilvik sé að ræða.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lög um fiskeldi, nr. 71/2008.
Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Bráðabirgðaniðurstaða ESA í máli vegna kvörtunar sem hafði verið beint til ESA vegna veitingar rekstrarleyfa til bráðabirgða og veitingar tímabundinna undanþága frá starfsleyfi til reksturs fiskeldisstöðva (14. apríl 2020).


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins  2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun  2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

Úrskurðir úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr.  3/2018 og nr.  5/2018.


Síðast breytt 10.07.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.