Samantekt um þingmál

Menningarminjar

429. mál á 153. löggjafarþingi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Markmið

Að tryggja aldursfriðun þeirra húsa og mannvirkja sem raunverulega er þörf á að njóti verndar og að koma í veg fyrir að hús og önnur mannvirki sem ekki er þörf á að vernda öðlist slíka vernd eingöngu sökum aldurs.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að aldursfriðun húsa og mannvirkja miðist við byggingarár 1923 eða fyrr í stað 100 ára reglu. Gert er ráð fyrir að Minjastofnun Íslands fái heimild til að skilyrða leyfi vegna framkvæmda á friðuðum húsum eða leggja til friðlýsingu þeirra. Þá er lagt til að umsagnarskyldu húsa sem ekki njóta friðunar, en eru byggð 1925 eða fyrr, verði breytt til ársins 1930.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um menningarminjar, nr. 80/2012.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að miðað verður við árið 1940 í stað 1930 hvað varðar umsagnarskyldu húsa sem ekki njóta friðunar.


Síðast breytt 10.07.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.