Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld

432. mál á 153. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að eyða réttaróvissu og gera löggjöf á sviði skattamála skýra.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til margvíslegar breytingar á lögum um skatta og gjöld. Meðal annars er um að ræða ákvæði sem snúa að kaupum á hlutabréfum samkvæmt kauprétti í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, lengingu heimildar til endurákvörðunar úr sex árum í tíu ár vegna mútubrota o.fl.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009.
Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.
Lög um erfðafjárskatt, nr. 14/2004.
Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Búvörulög, nr. 99/1993.
Lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005.
  • Skylt mál: Skattar og gjöld, 579. mál (efnahags- og viðskiptanefnd) á 153. þingi (14.12.2022)

Kostnaður og tekjur

Ef bráðabirgðaákvæði laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki verða framlengd um tvö ár er áætlað að kostnaður ríkissjóðs verði samtals tæplega 30 milljarðar kr. fyrir árin 2024 og 2025. Að óbreyttu hefði þessi kostnaður numið 6,5–7,5 milljörðum kr. á árinu 2024. Kostnaður ríkissjóðs vegna stuðningsins er að hluta til umfram fjárheimildir en í fjármálaáætlun 2023–2027 var gert ráð fyrir að kostnaður við að gera bráðabirgðaákvæði laganna varanleg yrði 11,5 milljarðar kr. Önnur áhrif á kostnað koma að mestu fram vegna þess að lagt er til að fallið verði frá fjöldamörkum rafmagnsbíla. Sé gert ráð fyrir að hlutdeild þeirra í innflutningi fólksbifreiða haldi áfram að aukast árið 2023 má áætla að tekjutap ríkisins vegna brottfellingar á 20.000 bíla fjöldamörkum gæti numið 3,8 milljörðum kr. Þá er áætlaður kostnaður ríkissjóðs vegna framlengingar á sérstakri ívilnun fyrir húsbíla um 200 milljónir kr. á árinu 2023. Að öðru leyti eru kostnaðar- og tekjuáhrif frumvarpsins óveruleg.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar




Síðast breytt 21.08.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.