Samantekt um þingmál

Tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist

442. mál á 153. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að stuðla að áframhaldandi uppgangi íslensks tónlistariðnaðar með því að framlengja gildistíma laga nr. 110/2016 og styðja þannig innviði greinarinnar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þjónustuaðilar geti sótt um endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun hér á landi. Þá er lagt til að framlengja gildistíma laganna til ársins 2027.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist, nr. 110/2016.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að breytingar á lögunum muni auka útgjöld ríkissjóðs en útgjöld geta breyst í samræmi við breytta eftirspurn eftir endurgreiðslum. Áætlað er að árleg fjárveiting á fjárlögum til endurgreiðslna verði svipuð og verið hefur, um 51,5–81 milljónir kr. á ári.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 31.05.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.