Samantekt um þingmál

Veiðigjald

490. mál á 153. löggjafarþingi.
Matvælaráðherra.

Markmið

Að jafna sveiflur í útreikningi veiðigjalds.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að skattalegar fyrningar skipa og skipsbúnaðar umfram 20% dragist frá veiðigjaldsstofni í fimm jafnháum fjárhæðum á næstu fimm árum sem á eftir koma. Slík dreifing fyrninga mun aðeins eiga sér stað þegar aukafyrningar nema að minnsta kosti 200 milljónum kr.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um veiðigjald, nr. 145/2018.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið samþykkt óbreytt munu veiðigjöld hækka um 2,5 milljarða kr. árið 2023. Gert er ráð fyrir að veiðigjald næstu ára verði hærra en áætlað var vegna þaks sem sett verður á fyrningar skipa og skipsbúnaðar sem geta komið til frádráttar við útreikning á reiknistofni veiðigjalds, en síðan verður veiðigjald lægra árin þar á eftir.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 28.11.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.