Samantekt um þingmál

Veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

538. mál á 153. löggjafarþingi.
Matvælaráðherra.

Markmið

Að draga úr olíunotkun fiskiskipa með því að hvetja til endurnýjunar og endurbóta á skipakosti með umhverfisvænni skipum sem eru útbúin stærri og hæggengari skrúfu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimildir fiskiskipa til veiða með botnvörpu, flotvörpu og dragnót miðist við lengd skipa en ekki aflvísi, þ.e. margfeldi á afli aðalvélar og þvermáli skrúfu skips.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 27.05.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.