Samantekt um þingmál

Stjórn fiskveiða

539. mál á 153. löggjafarþingi.
Matvælaráðherra.

Markmið

Að hvetja eigendur smábáta til að fjárfesta í rafknúnum bátum og stuðla að orkuskiptum í sjávarútvegi með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að smábátar sem knúnir eru rafmagni fái að landa 750 kg af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð í stað 650 kg eins og fyrir hefðbundin skip.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 27.05.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.