Samantekt um þingmál

Stjórn fiskveiða

596. mál á 153. löggjafarþingi.
Matvælaráðherra.

Markmið

Að koma í veg fyrir ofveiði á íslenskum deilistofnum botnfisks.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að stöðva flutning á aflamarki milli deilistofna botnfisks til að koma í veg fyrir ofveiði. Þá er lagt til að sömu reglur gildi fyrir hryggleysingja og uppsjávarfiska og fyrir aðrar fisktegundir þegar kemur að því að færa aflamark milli ára til að jafna sveiflur og vegna umframveiði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri meginbreytingu að heimild til að flytja aflamark uppsjávartegunda (kolmunna, makríls og norsk-íslenskrar síldar) milli ára var hækkuð úr 10% í 15% ef ekki er í gildi samningur milli strandríkja.


Síðast breytt 27.05.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.