Samantekt um þingmál

Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða o.fl.

880. mál á 153. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að ýta undir aukna fjárfestavernd og draga úr kostnaði við dreifingu sjóða yfir landamæri.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að innleiða tvær Evrópugerðir um sölu sjóða yfir landamæri og að kveðið verði á um heimildir til þess að reka sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020.
Lög um verðbréfasjóði, nr. 116/2021.
Lög um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, nr. 31/2022.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 frá 20. júní 2019 um að auðvelda dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 345/2013, (ESB) nr. 346/2013 og (ESB) nr. 1286/2014.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB að því er varðar dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri (AIFMD-tilskipunin).


Síðast breytt 21.08.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.