Samantekt um þingmál

Evrópska efnahagssvæðið

890. mál á 153. löggjafarþingi.
Utanríkisráðherra.

Markmið

Að einstaklingar og lögaðilar njóti að fullu réttinda sinna á grundvelli EES-samningsins og standa vörð um samninginn með því að tryggja að þjóðréttarskuldbindingar Íslands sem í EES-samningnum felast séu uppfylltar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þegar lög sem byggja á EES-samningnum stangast á við önnur almenn íslensk lög, þá skulu hin fyrrnefndu ganga framar, nema Alþingi hafi ákveðið annað. Lagt er til að hið sama skuli gilda um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 16.07.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.