Samantekt um þingmál

Dómstólar

893. mál á 153. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri héraðsdómsstigsins og styrkja faglegan grundvöll starfsemi dómstigsins á landsbyggðinni.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að átta héraðsdómstólar landsins verði sameinaðir í einn dómstól undir nafninu Héraðsdómur. Gert er ráð fyrir að yfirstjórn hans verði staðsett í Reykjavík, að dómstóllinn hafi átta lögbundnar starfsstöðvar á þeim stöðum þar sem héraðsdómstólar eru nú starfræktir og að lögbundinn lágmarksfjöldi starfsmanna verði á hverri starfsstöð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um dómstóla, nr. 50/2016.
Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að stofnkostnaður sem af frumvarpinu hlýst rúmist innan ramma gildandi fjárlaga.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu dómstólanna (apríl 2020).


Sameining héraðsdómstóla lögð til í skýrslu starfshóps. Dómsmálaráðuneytið, 16. desember 2022.


Síðast breytt 15.09.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.