Samantekt um þingmál

Kvikmyndalög

899. mál á 153. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að styðja við framleiðslu, sölu og dreifingu leikinna sjónvarpsþáttaraða með vísan til aðgerða í kvikmyndastefnu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að stofnaður verði nýr styrkjaflokkur Kvikmyndasjóðs sem ætlað er að styrkja gerð viðamikilla leikinna sjónvarpsþáttaraða og munu styrkirnir fela í sér kröfu um endurheimt verði ákveðnum tekjuviðmiðum verkefnis náð. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Kvikmyndalög, nr. 137/2001.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir litlum sem engum áhrifum á ríkissjóð til skemmri tíma en til lengri tíma litið gætu breytingarnar leitt til aukins ráðstöfunarfjár Kvikmyndasjóðs þegar endurgreiðslur koma til framkvæmdar.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Fyrsta heildstæða kvikmyndastefnan orðin að veruleika. Menningar- og viðskiptaráðuneytið, 6. október 2020.


Síðast breytt 25.06.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.