Samantekt um þingmál

Tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna

939. mál á 153. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að virða vilja einstaklinga eða pars, sem hefur geymt kynfrumur eða fósturvísa í tengslum við tæknifrjóvgunarferli, til að nýta kynfrumur eða fósturvísa þrátt fyrir andlát eða breytingu á sambúðarformi aðila.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að slit sambúðar eða hjúskapar leiði ekki sjálfkrafa til þess að þeim kynfrumum eða fósturvísum sem einstaklingar sem standa að tæknifrjóvgun og eiga í geymslu í kjölfar meðferðar verði eytt. Hið sama eigi við ef annar einstaklingurinn sem stóð að tæknifrjóvgun andast. Gerð er krafa um að sá sem vill nýta kynfrumur á þennan hátt sé einhleypur þegar að tæknifrjóvgun kemur.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996.
Barnalög, nr. 76/2003.
Erfðalög, nr. 8/1962.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að fallið var frá því skilyrði að einstaklingur sé einhleypur þegar hann nýtir kynfrumur eða fósturvísa til tæknifrjóvgunar.


Síðast breytt 27.11.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.