Mennta- og skólaþjónustustofa
956. mál á 153. löggjafarþingi.
Mennta- og barnamálaráðherra.
Markmið
Að stofna Mennta- og skólaþjónustustofu, sem er þjónustu- og þekkingarmiðstöð, og starfar í þágu barna og ungmenna á sviði fræðslu- og menntamála um land allt í samræmi við lög, stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að stofnuð verði Mennta- og skólaþjónustustofa, sem tekur við fjölbreyttum þjónustu-, ráðgjafar- og stuðningshlutverkum við menntun og skólaþjónustu á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Gert er ráð fyrir að Menntamálastofnun verði lögð niður og verkefni hennar færist til Mennta- og skólaþjónustustofu og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Í frumvarpinu er lagt til að markaður verði rammi um verkefni nýrrar stofnunar.Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um Menntamálastofnun, nr. 91/2015. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, lögum um háskóla, nr. 63/2006, lögum um námsgögn, nr. 71/2007, lögum um leikskóla, nr. 90/2008, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, lögum um framhaldsfræðslu, nr. 27/2010, lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, nr. 130/2018, lögum um lýðskóla, nr. 65/2019, og lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019.- Skylt mál: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál (mennta- og barnamálaráðherra) á 154. þingi (26.09.2023)