Samantekt um þingmál

Endurskoðendur og endurskoðun o.fl.

981. mál á 153. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að innleiða tvær Evrópugerðir um gæði endurskoðunar og gagnsæi, skýra stöðu siðareglna endurskoðenda og gera breytingar til einföldunar á stjórnsýsluframkvæmd mála vegna stjórnvaldssekta.

Helstu breytingar og nýjungar

Með frumvarpinu eru innleidd ákvæði tilskipunar ESB um lögboðna endurskoðun ársreikninga, óhæði og hlutlægni endurskoðenda og reglugerðar ESB um endurskoðunarnefndir. Lagt er til að endurskoðendaráð verði sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hafi eftirlit með endurskoðunarnefndum. Þá er lagt til að fella siðareglur endurskoðenda undir hugtakið góð endurskoðunarvenja, sem tekur mið af breytingum á alþjóðlegum siðareglum endurskoðenda. Gert er ráð fyrir að ákvarðanir ársreikningaskrár um sektir verði endanlegar á stjórnsýslustigi, með heimild til lækkunar eða niðurfellingar sekta vegna óviðráðanlegra atvika.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.
Lög um ársreikninga, nr. 3/2006.

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afgreiðsla

Afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/56/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2006/43/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 537/2014 frá 16. apríl 2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum sem tengjast almannahagsmunum og niðurfellingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2005/909/EB.


Síðast breytt 25.06.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.