Samantekt um þingmál

Virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða

917. mál á 154. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að auka skýrleika og fyrirsjáanleika laga um virðisaukaskatt með því að aðlaga þau betur reglum Evrópusambandsins og tilmælum OECD um milliríkjaviðskipti. Að styrkja samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að alþjóðaviðskiptum. Að auka skýrleika og skilvirkni í stjórnsýslu og innheimtu kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þjónusta sem er seld til erlendra atvinnufyrirtækja verði undanþegin virðisaukaskatti með ákveðnum undantekningum. Gert er ráð fyrir að ökutækjaleigum verði skylt að skila upplýsingum til Skattsins um nýtingu á virðisaukaskattsívilnun við endursölu á hreinorku- og tengiltvinnbifreiðum. Lagt er til að skýra betur hlutverk ríkisskattstjóra og Samgöngustofu í sambandi við innheimtu kílómetragjalds, sérstaklega varðandi rafræna skráningu og álagningu gjaldsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Lög um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir beinum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun ráðsins 2006/112/EB frá 28. nóvember 2006 um sameiginlegt virðisaukaskattskerfi.

Alþjóðlegar leiðbeiningar OECD um virðisaukaskatt ( International VAT/GST Guidelines).


Síðast breytt 22.08.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.