Samantekt um þingmál

Tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda

921. mál á 154. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að efla erlenda fjárfestingu hér á landi, sérstaklega í nýsköpun.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að erlendir aðilar verði undanþegnir skattskyldu á söluhagnaði hlutabréfa í íslenskum hlutafélögum og vegna hagnaðar af sölu hlutdeildarskírteina í íslenskum sjóðum. Þá er lagt til að tímamörk fyrir nýtingu eftirstöðva rekstrartapa verði felld brott.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki um 40–240 milljónir kr. á ári en á móti er búist við tekjum í gegnum aukna erlenda fjárfestingu. Þá ríkir töluverð óvissa í kringum áhrif þess að taka út tímamörk á nýtingu eftirstöðva rekstrartapa en áhrifin ættu þá aðeins að koma fram eftir 11 ár, sbr. ákvæði til bráðabirgða í a-lið 4. gr. Í öðrum löndum hefur verið gengið út frá því að sambærileg breyting, þ.e. að fella niður 10 ára tímamörk, hefði takmörkuð áhrif á tekjur ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 14.08.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.