Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 4. júní
Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fara fram kl. 19.30 mánudaginn 4. júní 2018 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir, nöfn ræðumanna verða tilkynnt á mánudaginn.
Almennar stjórnmálaumræður sem fara fram á síðari hluta þings eru í daglegu tali kallaðar „eldhúsdagsumræður“. Í eldhúsdagsumræðum er rætt um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar.
Í Íslensku alfræðiorðabókinni er eldhúsdagsumræðum lýst svo: ,,almennar stjórnmálaumræður á Alþ. um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar, haldnar undir þinglok og er útvarpað og sjónvarpað. Heitið vísar til þess að í e. gerir ríkisstjórnin hreint fyrir sínum dyrum.“
Í íslenskum orðabókum er fyrsta skýring á eldhúsdegi að hann sé annadagur í eldhúsi. Í Íslensk–danskri orðabók Sigfúsar Blöndals eru rækilegri skýringar á orðinu eldhúsdagur:
1. en travl Dag í Køkkenet, især i Slagtetiden.
2. Dag, hvor man er blevet trakteret i Køkkenet, har faaet god og rigelig Mad; ogs. i overf. Bet.: Dag, man har haft det godt, en glad Dag: haltu þjer nú eldhúsdag á morgun af þessum sauð, gør dig nu en glad Dag i Morgen paa dette Faar.
3. ,,Køkkendag“, i Udtr.: gera sjer eldhúsdag, rydde op i Køkkenet, især i overf. Bet.: faa af Vejen og rydde bort Ting og Sager, der har samlet sig op.
4. spec. i Altinget den Dag, Finansloven kommer til Behandling, efter at have været i Udvalg (Fortsættelse af første Behandling; man benytter i Alm. denne Dag til Kritik af Regeringens Førelse i det hele taget.)
Þessar tilvitnanir í tvö rit, hin fyrri frá 1990 og hin síðari frá 1920–1924, sýna að eldhúsdagsumræður í Alþingi hafa breyst að formi, en tilgangur þeirra er hinn sami.
Ítarleg umfjöllun um eldhúsdagsumræður er í Handbók Alþingis 2003, bls. 239–261.
Yfirlit frá 1996 yfir dagsetningu eldhúsdagsumræðna og frestun þingfunda
Þing | Eldhúsdagsumræður | Þingi frestað |
---|---|---|
121. 1996–1997 | 14. maí | 17. maí |
122. 1997–1998 | 3. júní | 5. júní |
123. 1998–1999 | 8. mars | 11./25. mars |
125. 1999–2000 | 10. maí | 13. maí/2. júlí |
126. 2000–2001 | 16. maí | 20. maí |
127. 2001–2002 | 24. apríl | 3. maí |
128. 2002–2003 | 12. mars | 15. mars |
130. 2003–2004 | 24. maí | 28. maí/22. júlí |
131. 2004–2005 | 10. maí | 11. maí |
132. 2005–2006 | 3. júní | 3. júní |
133. 2006–2007 | 14. mars | 18. mars |
135. 2007–2008 | 27. maí | 29. maí/12. sept. |
136. 2008–2009 | 7. apríl | 17. apríl |
138. 2009–2010 | 14. júní | 24. júní/28. sept. |
139. 2010–2011 | 8.júní | 15. júní/17. sept. |
140. 2011–2012 | 29. maí | 19. júní |
141. 2012–2013 | 13. mars | 27. mars |
143. 2013–2014 | 14. maí | 16. maí/18. júní |
144. 2014–2015 | 1. júlí | 3. júlí |
145. 2015–2016 | 26. september | 13. október |
146. 2016–2017 | 29. maí | 1. júní |