Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 7. júní
Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi í kvöld, miðvikudaginn 7. júní, og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar hefjast kl. 19:40, skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.
Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Miðflokkurinn.
Ræðumenn flokkanna verða eftirtaldir:
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni, Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurkjördæmis.
Ræðumenn Flokks fólksins eru Inga Sæland, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrri umferð, og Bryndís Haraldsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.
Ræðumenn Pírata eru í fyrri umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í seinni umferð Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.
Fyrir Framsóknarflokkinn tala Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurkjördæmis, í þeirri seinni.
Ræðumenn Viðreisnar eru Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og í þeirri seinni Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.
Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.
Fyrir Miðflokkinn tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.