Starfsáætlun - sumarfundir
Forsætisnefnd Alþingis afgreiddi á fundi sínum 17. maí sl. breytingar á starfsáætlun 145. löggjafarþings þar sem gert er ráð fyrir sumarfundum.
Samkvæmt starfsáætluninni verða fundir í nefndum Alþingis frá 10.–12. ágúst. Gert er ráð fyrir þingfundum frá 15. ágúst til 2. september.