Tilkynningar
Breytingar á starfsáætlun Alþingis: Nefndadagur 26. apríl
Forseti Alþingis hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að föstudagurinn 26. apríl verði nefndadagur.
Fundatafla er send út vegna breytingar á starfsáætlun og eru fundatímar eftirfarandi:
- Kl. 9–12 B-nefndir: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.
- Kl. 13–16 A-nefndir: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
Endanlegir fundatímar og dagskrár birtast á vef Alþingis.
Nánari upplýsingar um nefndastörf, nefndadaga og fyrirkomulag þeirra