Fundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis 2016 – bein útsending
Opinn fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, mánudaginn 12. mars kl. 10:00. Fundarefnið er skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2016 .
Gestir fundarins frá umboðsmanni Alþingis verða Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Særún María Gunnarsdóttir skrifstofustjóri og Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður frumkvæðismála.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.