Tilkynningar
Nefndadagur 19. júní
Samkvæmt starfsáætlun er nefndadagur 19. júní. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi.
Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.
Nefndir eiga eftirfarandi fundatíma:
Föstudagur 19. júní
- kl. 9-12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd.
- kl. 13-16: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
- kl. 16-20: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.