Fundur fjárlaganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 25. september 2012 opinn fréttamönnum
Fyrirhugað er að sameiginlegur fundur fjárlaganefndar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 25. september 2012 verði opinn fréttamönnum. Fundarefnið er bókhaldskerfi ríkisins og gestir verða frá Ríkisendurskoðun. Fundurinn hefst kl. 12.00.
Í byrjun fundar verður leitað eftir samþykki fyrir því að fundurinn verði opinn fréttamönnum.
Dagskrá fundarins.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir. Fundurinn er opinn fréttamönnum en verður hvorki tekinn upp né sent beint frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.