Opinn fundur atvinnuveganefndar um ábyrga uppbyggingu og framtíð lagareldis á Íslandi
Atvinnuveganefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 23. mars í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10. Fundurinn hefst kl. 9:00 og stendur til 10:10.
Fundarefnið er ábyrg uppbygging og framtíð lagareldis á Íslandi og helstu niðurstöður skýrslu alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi. Gestir fundarins verða Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri, Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri á skrifstofu matvæla, Kári Gautason, aðstoðarmaður ráðherra, og Iðunn Garðarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.