Opinn fundur fjárlaganefndar miðvikudaginn 27. apríl um sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka
Fjárlaganefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 27. apríl í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 kl. 9 til 11. Fundarefnið er sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka. Til fundarins koma fulltrúar Bankasýslunnar, þeir Jón Gunnar Jónsson forstjóri og Lárus Blöndal stjórnarformaður.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.