Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd með peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands 29. ágúst
Opinn fundur verður haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis með peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mánudaginn 29. ágúst 2016 kl. 9.30.
Gestir fundarins verða:
Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Gylfi Zoega.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.