Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd þriðjudaginn 10. október
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 9. október í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 8:30.
Fundarefnið er framkvæmd samkeppnislaga og eftirlit með samkeppnisbrotum – umgjörð, málsmeðferð og starfsemi Samkeppniseftirlitsins.
Gestir fundarins verða:
- Kl. 8:30 Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra
- Kl. 9:10 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, og Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.