Opinn fundur um varðveislu sönnunargagna í sakamálum - bein útsending
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund um varðveislu sönnunargagna í sakamálum miðvikudaginn 17. janúar kl. 15-17.
Gestir fundarins eru Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn er haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.