Nefnda- og greiningarsvið
Nefnda- og greiningarsvið aðstoðar fastanefndir þingsins og þingmenn við nefndastörf, þingmálagerð o.fl., sinnir ýmsum greiningarverkefnum og rækir rannsóknaþjónustu. Eitt af meginhlutverkum sviðsins er að stuðla að vönduðu lagasetningarferli. Starfsfólk sviðsins starfar í tveimur deildum, nefndadeild og fjárlaga- og greiningardeild.
Nefndadeild veitir fastanefndum faglega aðstoð og lögfræðilega ráðgjöf, m.a. við yfirferð mála, gerð nefndarálita og breytingartillagna og gagna- og upplýsingaöflun. Í nefndadeild er einnig starfrækt stoðteymi sem sinnir ýmiss konar stoðþjónustu við skrifstofu Alþingis. Stoðteymi sinnir m.a. undirbúningi og skipulagningu nefndarfunda, sér um bókun funda og gesta fyrir nefndir þingsins og vinnur gögn og samantektir. Teymið sinnir einnig ritaraþjónustu fyrir forseta þingsins, skrifstofustjóra og framkvæmdastjórn, auk þess að sinna skjalavörslu og ferlaskráningu og starfa í skjalateymi.
Fjárlaga- og greiningardeild veitir fjárlaganefnd og framtíðarnefnd aðstoð og ráðgjöf og sinnir faglegri yfirferð frumvarps til fjárlaga, fjármálaáætlunar og fjármálastefnu auk annarra mála. Rannsókna- og upplýsingaþjónusta er jafnframt starfrækt í deildinni og sinnir hún gagna- og upplýsingaöflun fyrir þingmenn, þingnefndir og starfsfólk skrifstofunnar. Þar eru tekin saman minnisblöð, gerðar greiningar og úttektir á gögnum og ritaðar samantektir um þingmál.
Fjárlaga- og greiningardeild sér einnig um rekstur bókasafns Alþingis. Afgreiðslutími safnsins er samkvæmt samkomulagi. Frekari upplýsingar fást í síma 563 0630 eða með því að senda fyrirspurnir í tölvupósti.
Starfsfólk nefnda- og greiningarsviðs hefur aðsetur á 2. hæð Smiðju, Tjarnargötu 9. Fundarherbergi fastanefnda þingsins eru á 1. hæð Smiðju.