Fjöldi og lengd ráðgjafarþinga
Ráðgefandi Alþingi kom saman annað hvert ár og var háð þau ár sem greinir hér að neðan.
Ár | Þingsetning | Þingi slitið |
---|---|---|
1845 | 1. júlí | 5. ágúst |
1847 | 1. júlí | 7. ágúst |
1849 | 2. júlí | 8. ágúst |
1853 | 1. júlí | 10. ágúst |
1855 | 2. júlí | 9. ágúst |
1857 | 1. júlí | 17. ágúst |
1859 | 1. júlí | 18. ágúst |
1861 | 1. júlí | 19. ágúst |
1863 | 1. júlí | 15. ágúst |
1865 | 1. júlí | 26. ágúst |
1867 | 1. júlí | 11. september |
1869 | 27. júlí | 13. september |
1871 | 1. júlí | 22. ágúst |
1873 | 1. júlí | 2. ágúst |
Ráðgjafarþingin voru háð í 14 skipti á árabilinu 1845 til 1873. Þjóðfundurinn – stjórnlagaþingið – stóð yfir dagana 5. júlí til 9. ágúst 1851 og reglulegt Alþingi, sem átti að halda þetta ár, féll þá niður.