Orri Páll Jóhannsson
- Embætti: Formaður þingflokks
- Kjördæmi: Reykjavíkurkjördæmi suður
- Þingflokkur: Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Nefndasetur:
Þingstörf og hagsmunaskrá
Þingseta
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður janúar–febrúar, apríl og september 2017, september, nóvember og desember 2019 og júní 2020 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs síðan 2021.
Æviágrip
Fæddur í Reykjavík 19. maí 1978. Foreldrar: Jóhann Pálsson (fæddur 15. janúar 1952, dáinn 17. nóvember 1986) framkvæmdastjóri og Sigrún Bergljót Björnsdóttir (fædd 13. júlí 1950) kennari og námsráðgjafi. Maki: Jóhannes Elmar Jóhannesson Lange (fæddur 16. júní 1974) nemi og leiðbeinandi á leikskóla. Foreldrar: Jóhannes Hrafn Þórarinsson og Eva María Lange Þórarinsson.
Stúdentspróf MH 1998. Búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2000. BS-próf í vistfræði og umhverfisvernd frá Umhverfis- og lífvísindaháskóla Noregs að Ási 2005.
Verkefnisstjóri Skóla á grænni grein (Grænfánans) hjá Landvernd 2008–2012. Landvörður og aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 2012–2015. Aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar og þjóðgarðsvörður á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 2015–2017. Aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra 2017–2021.
Fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd MH 2000–2017. Fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra í háskólaráði LBHÍ 2009–2013. Í stjórn Eldvatna – samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi 2015–2018. Í stjórn Reykjavíkurfélags Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2016–2018. Í flokksráði Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2017–2021. Í Þingvallanefnd 2022–.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður janúar–febrúar, apríl og september 2017, september, nóvember og desember 2019 og júní 2020 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs síðan 2021.
Umhverfis- og samgöngunefnd 2021–, framtíðarnefnd 2021–.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2021–.
Æviágripi síðast breytt 26. janúar 2024.