Tilkynningar

Skrifstofa Alþingis hlýtur viðurkenningu Jafnréttisvogar FKA í annað sinn

14.10.2024

Skrifstofa Alþingis er á meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis Félags kvenna í atvinnulífinu. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 10. október sl., sem bar yfirskriftina „Látum eitthvað gerast, jafnrétti er ákvörðun“. Þetta er í annað sinn sem skrifstofan hlýtur viðurkenninguna.

Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er veitt árlega þeim fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem hafa skuldbundið sig til að vinna að skýrum jafnréttismarkmiðum, hafa undirritað viljayfirlýsingu þar um og náð a.m.k. 40/60 kynjahlutfalli í efsta stjórnendalagi. Í ár hlutu 93 fyrirtæki, 15 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar úr hópi þeirra 247 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu um að ná fram tilsettum jafnréttismarkmiðum í starfsemi sinni.

Nánar um verkefnið

Jafnvaegisvogin-2024-FKA-Silla-Pals-Mirror-Rose

Ljósmynd / Silla Páls

Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogarinnar 2024.