Þinglýsingalög
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á þinglýsingalögum nr. 39 frá 10. maí 1978. Hér er um fylgifrv. frv. til l. um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði að ræða. Varðandi mál þetta vil ég vísa til framsögu minnar í því máli og leggja til að máli þessu verði með sama hætti vísað til 2. umr. og hv. allshn. að lokinni þessari umræðu.