Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lagaákvæðum um niðurfellingu laga vegna breytinga á skipan sveitarstjórnarmála samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 8/1986 sem fram kom á þskj. 232. Ástæða þess að frv. þetta er nú lagt fram er að með samþykkt sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 var gerð sú veigamikla breyting á skipan sveitarstjórnarmála hér á landi að sýslunefndir voru lagðar niður, en þær hafa verið við lýði allt frá því tilskipun um sveitarstjórnarmálefni tók gildi árið 1872. Þessi breyting felur m.a. í sér að réttarstaða allra sveitarfélaga verður sú sama samkvæmt sveitarstjórnarlögum, hvort sem þau nefnast kaupstaður, bær eða hreppur en samkvæmt eldri sveitarstjórnarlögum var réttarstaða hreppanna frábrugðin stöðu kaupstaðanna að því leyti að sýslunefndum var m.a. ætlað að hafa umsjón með störfum hreppsnefnda.
    Í bráðabirgðaákvæði hinna nýju sveitarstjórnarlaga var þó svo fyrir mælt að sýslunefndir skyldu kosnar á árinu 1986 og færu með umboð þar til sveitarstjórnir eða byggðasamfélög gætu tekið við verkefum þeirra, þó ekki lengur en til 31. des. 1988. Skv. 6. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 skulu lögbundin verkefni sýslunefnda falin sveitarfélögum sem síðan skulu setja á stofn héraðsnefndir eða byggðasamlög til að annast framkvæmd þeirra að svo miklu leyti sem nauðsynlegt er að hafa samvinnu um verkefnin.
    Fyrr á þessu ári skilaði áliti sínu nefnd sem skipuð var af félmrh. til að gera tillögur að reglum um flutning verkefna og önnur skil af hálfu sýslufélaga til sveitarfélaga og héraðsnefnda. Í þessu áliti var einnig að finna tillögur nefndarinnar um breytingu á lögum og lagaákvæðum sem varða sýslufélög, sýslunefndir og sýslusjóði. Tillögur þessar fólu í sér breytingar til samræmis við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986. Þar sem lög þau sem lagt var til að breytt yrði heyra undir hin ýmsu ráðuneyti var sl. vor sent bréf til allra hlutaðeigandi ráðuneyta með ósk um að þau fjölluðu um fram komnar tillögur. Svör hafa verið að berast þar til um miðjan nóvember að síðasta svarið barst. Endanleg gerð frv. var síðan unnin í félmrn.
    Í stuttu máli má segja að í frv. sé gengið út frá því að hvarvetna verði settar á stofn héraðsnefndir í samræmi við ákvæði 6. gr. sveitarstjórnarlaga. Í mörgum tilvikum er þannig lagt til að héraðsnefndir eða byggðasamlög komi í stað sýslunefnda og héraðssjóðir í stað sýslusjóðs, en á öðrum sviðum hefur þótt eðlilegra að sveitarstjórnir og sveitarsjóðir leystu sýslunefndir eða sýslusjóði af hólmi. Í örfáum tilvikum er þó gert ráð fyrir að sýslumenn komi í stað sýslunefnda.
    Í 24. gr. frv. er að finna tillögu til breytinga á skiptingu kostnaðar við eyðingu refa og minka. Samkvæmt gildandi lögum um eyðingu refa og minka skal endurgreiðslu á kostnaði vegna eyðingar refa og minka skipt á þann veg að ríkissjóður greiði 2 / 3 , sýslusjóðir 1 / 6 og sveitarsjóðir 1 / 6 . Í 24. gr. frv. er lagt

til að skiptingunni verði breytt á þann veg að ríkissjóður greiði 3 / 4 hluta en sveitarsjóðir 1 / 4 . Í þessari breytingu felst að þeim hluta sem sýslusjóði er nú ætlað að greiða skal samkvæmt brtt. skipt í tvennt milli ríkis annars vegar og sveitarfélaga hins vegar.
    Þá þykir rétt að vekja sérstaklega athygli á því að í frv. er einnig að finna tillögur um niðurfellingu ýmissa lagaákvæða sem talið er að ekki eigi lengur við með hliðsjón af breyttri skipan sveitarstjórnarmála. Sama á við um ýmis gömul lög og úrelt. Hér er því um að ræða talsverða lagahreinsun.
    Í ákvæði til bráðabirgða er að finna tillögur um hvenær kosning til gróðurverndarnefnda og náttúruverndarnefnda skuli fara fram nái frv. þetta fram að ganga og enn fremur hvenær tilnefning í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands skuli fara fram. Vakin er athygli á að í frv. er ekki að finna tillögur til breytinga á nokkrum lögum sem víkja að sýslunefndum og sýslusjóðum þar sem af hálfu þeirra ráðuneyta sem í hlut eiga hefur verið upplýst að þau muni flytja í þessum tilvikum sérstök frumvörp er taka þar til hinnar breyttu skipunar sveitarstjórnarmála.
    Í athugasemdum þeim sem fylgja frv. er gerð grein fyrir því um hvaða lög er að ræða. Í frv. til breytinga á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu dögum er að finna tillögur annars vegar um niðurfellingu 7. gr. íþróttalaga og hins vegar á nokkrum ákvæðum vegalaga sem snerta sýsunefndir og sýslusjóði. Ekki var því talin ástæða til að gera tillögur til breytinga á þessum lagaákvæðum í frv. því sem hér er lagt fram.
    Að öðru leyti vísa ég til almennra athugasemda sem fylgja frv. og ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til félmn. og 2. umr.