Seðlabanki Íslands
Miðvikudaginn 22. mars 1989

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 695 liggur fyrir álit meiri hl. fjh.- og viðskn. og þar segir að nefndin hafi fjallað um frv. og ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Ed. og prentað á þskj. 681.
    Til viðræðna við nefndina um frv. komu bankastjórarnir Jóhannes Nordal og Geir Hallgrímsson og Ólafur B. Thors, formaður bankaráðs. Að þessu nál. standa Páll Pétursson, Árni Gunnarsson, Ragnar Arnalds, Guðmundur G. Þórarinsson og með fyrirvara Kristín Einarsdóttir.