Fjáraukalög 1987
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Kristinn Pétursson:
    Hæstv. forseti. Aðeins örstutt. Ég kemst ekki hjá því að gera athugasemdir við ekki bara að frv. sé gallað, heldur geri ég athugasemd við þá málsmeðferð að það sé verið að taka tíu ára gamlar syndakvittanir til umræðu hér og vil mælast til þess við hæstv. forseta að í haust verði tekið til umræðu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989.