Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegur forseti. Út af því sem hv. þm. Karvel Pálmason sagði, þá er það ekki rétt. Ég hef aldrei lofað nokkru í þessu sambandi, enda ekki verið í aðstöðu til þess. Hitt er svo annað mál að vilji minn og margra annarra stóð til þess að framkvæma þessa áætlun með þeim hætti að teknar yrðu 80 hrefnur á ári, en ýmsar aðstæður sem ég ætla ekki að fara að rekja hér hafa komið í veg fyrir að þeim vilja yrði hrint í framkvæmd.